Á síðasta degi Stefáns á leikskólanum Sólhlíð, mætti hann með tvær hljómsveitir með sér. Benni Hemm Hemm og Reykjavík! komu og spiluðu fyrir krakkana. Skólastjórinn komst svo að orði að flestir krakkar kæmu með köku eða ís á síðasta deginum en Stefán þurfti að gera þetta öðruvísi.
Eftir að Stefán hætti á skólanum lá leiðin strax vestur í paradísina. Þarna eru krakkarnir hjá afa Stebba að fagna nýustu frænkunni, henni Soffíu Rún. Hún var skírð í endaðan júlí.
Við fórum í frábæra heimsókn í Dufansdal til Árnýjar, Súna, Jóns Darra og Brynhildar Lailu. Þarna eru Fríða og Brynhildur í náttúruparadísinni við Hvestu, grunlausar um alla umræðu um olíuhreinsunarstöð.
3 comments:
Gaman að sjá litla frændann vera fara í skólann en ég fer bráðum að setja inn ágúst myndirnar, trúlegast verður hellingur af myndum af krökkunum síðan í Ölfusborgum.
oohhhh ég sakna ykkar svo mikið :o*
Þær eru sætar þarna í sandinum! kv við öll.
Post a Comment