Monday, March 31, 2008

Alveg dýrðlegir páskar.

Stefán Bjartur kallar ekki allt ömmu sína þegar kemur að töffaraskap. Það er engu líkara en hann haldi að hann sé í hljómsveitinni Oasis...

Fríða er þarna í himnasælu með Sæmundi í eldhúsinu hjá ömmu og afa í Kjarrholtinu. Hver var annars aftur sagan af matarkexinu og Sæmundi...?

Stefán með mömmu sinni á skíðasvæðinu í Tungudal á föstudaginn langa. Þau voru m.a. að fylgjast með pabba að spila með Dr.Gunna og félögum en þau skemmtu krökkunum á skíðasvæðinu með lögunum úr Abbababb.

Þarna er hljómsveitin komin á svið daginn eftir á Aldrei fór ég suður. Ég, Gunni, Heiða og Elvar mynduðum þarna hljómsveitina Unun og fengum við Óttarr Proppé í eitt lag. Stefán Bjartur stóð stjarfur af hrifningu út í sal.

Norðlendingurinn Sigrún María kom í heimsókn og eru þær Fríða þarna að ræða málin.

Fríða státar einu af hina vinsæla hárskrauti mömmu sinnar en Bryndís hefur búið til aragrúa af svaka flottu hárskrauti síðustu misseri og selt mikið af. Engin furða ef hún fær svona fyrirsætur...! (þið getið kommentað hér fyrir neðan ef þið viljið forvitnast um hárskrautin)

Jóhanna með krakkana sína, Stefán og Hrefnu Dís út í garði. Þau virðast hafa dottið í holu.

Stefán er misduglegur við heimilisstörfin en það verður ekki tekið af honum að hann er mjög duglegur að taka til í dósa- og flöskusöfnuninni. Það er auðséð af hverjum hann hefur lært tæknina, jú honum Georgi Bjarnfreðarsyni.

3 comments:

Anonymous said...

Hello. This post is likeable, and your blog is very interesting, congratulations :-). I will add in my blogroll =). If possible gives a last there on my blog, it is about the Aluguel de Computadores, I hope you enjoy. The address is http://aluguel-de-computadores.blogspot.com. A hug.

Anonymous said...

http://jondarri.barnaland.is/ hér má sjá aðra skvísu með hárskraut frá bryndísi :) kveðjur til ykkar allra.
p.s. Ég er að reyna að virkja Jón Darra í dósunum, því hann er að safna sér fyrir geislasverði! Kannski SB taki hann í smá kennslu næst þegar þeir hittast?? :)
árg

Anonymous said...

Hæ hæ Bryndís og fjölskyla Vááááá gullfalleg börn hér á ferð ohhhh en hvað hún er mikill snúlla prinsessan þín og til lukku með hana Sæt með gleraugu sú stutta já er búin að reyna að hringja og senda sms í nr þitt en það vill hvorki sendast sms og segir að nr sé lokað ég er mikið búin að hugsa um þig Takk fyrir að finna mig knús á línuna og velkomin í kaffi á Höfn t.d á Humarhátið kv Linda og co