Saturday, May 31, 2008

Stefán útskrifaðist af leikskólanum Sólhlíð í síðustu viku. Var haldin athöfn þar krakkarnir sungu nokkur lög, fengu hatt og viðurkenningu svo var veisla á eftir. Batterýin í myndavélinni kláruðust en sem betur fer var Frænka með fínu vélina sína og tók myndir sem koma seinna. Hér er verið að syngja lagið Efemía.


hér eru þau að syngja lagið eldurinn logar með tilheyrandi handahreyfingum.


Fríða hélt upp á 1. árs afmælið sitt og bauð nokkrum vinum í kaffi.


Hún var í vorða fínum kjól sem hún fékk lánaðan hjá Jöhönnu frænku sinni.


Þennan flotta smekk fékk hún frá frænkum sínum á Ísafirði þeim Hrefnu og nýfæddri Guðsteinu eða Jóhönnu Bryndísi (djók).




Eftir erfiðan dag, allan baksturinn og gestaganginn varð Fríða svo þreytt að hún sofnaði fram á göngugrindina.


3 comments:

Sigga said...

Til hamingju með afmælið Fríða Katrín og til hamingju með áfangann Stefán Bjartur - verður engin útskriftardjammferð?
Fallegur söngurinn og síðasta myndin er alveg milljón, svona Bára lögst í bleyti-stemming!

Sjáumst í sumar.

Anonymous said...

Nafnið Guðsteina hefur verið skrifað niður, not!

Til hamingju með allt saman :o)

Anonymous said...

vá hvað þetta er fyndin mynd af henni Fríðu Katrínu!! Til hamingju með afmælið litla krútt, vonandi að það sé ekki svona erfitt alla daga að vera orðin 1 árs! ;) Og útskriftarkveðjur til Stefáns Freys! árný og co